
Landbúnaðarháskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands er staðsettur á Hvanneyri en kennsla og starfssemi er einnig á öðrum stöðum á landinu. Skólinn hefur sérstöðu meðal háskóla hérlendis en þessi sérstaða felst fyrst og síðast í viðfangsefni skólans sem er náttúra Íslands – nýting, viðhald og verndun.
Contact Info
Ástríður Margrét Eymundsdóttir – Námsráðgjafi LBHÍ
nams@lbhi.is
4335014
Spurning | Svarið |
---|---|
Er hjólastólaaðgengi inn og út úr byggingum skólans? | Já |
Er almennt hjólastólaaðgengi innan bygginga skólans? | Já |
Er jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar á skólasvæðinu? | Já |
Eru breiðar dyr og hurðir fyrir hjólastóla, sem auðvelt er að opna á skólasvæðinu? | Já. Breiðar dyr en ekki allar með sjálfvirkum hurðaopnum. |
Eru breiðir gangar og snúningsstaðir fyrir hreyfihamlaða? | Já |
Eru innréttingar og búnaður í réttri hæð fyrir hjólastólanotendur? | Hefur komið til móts við nemendur þegar þess þarf. |
Eru lyftur fyrir hreyfihamlaða til þess að komast á milli hæða? | Já |
Eru læstar lyftur í byggingum háskólans? Ef svarið er já vinsamlegast takið fram í útskýringum hvernig sé hægt að opna téðar lyftur og hverjir hafa aðgang að læstum lyftum. | Nei |
Eru lyftur opnar fyrir almenna notkun? | Já |
Er salernisaðstaða fyrir hreyfihamlaða á skólasvæðinu? | Já |
Eru bílastæði nálægt aðalinngangi bygginga? | Já |
Eru merkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða nálægt aðalinngangi bygginga? | Já |
Er reglulegur snjómokstur á bílastæðum á skólalóð/við byggingar skólans? | Já |
Er reglulegur snjómokstur á göngustígum á skólasvæðinu? | Já |
Eru tröppur ávallt með handlistum beggja vegna? | Já |
Eru reglulegir hvíldarstaðir á gönguleiðum þar sem að hægt er að setjast niður? | Ekki á öllum gönguleiðum en einhverjum |
Eru hvíldarrými/herbergi fyrir nemendur sem vegna veikinda eða fötlunar þurfa á slíku að halda? | Já |
Uppfylla rampar/skábrautir ákvæði byggingarreglugerðar um halla? (Sjá meðfylgjandi reglugerð efst á síðu) | Já |
Spurning | Svarið |
---|---|
Geta nemendur nálgast glærur kennara á námsgagnasíðu á vegum skólans? | Já |
Geta nemendur nálgast hljóðupptökur af kennslustundum skólans? | Já |
Geta nemendur nálgast myndupptökur af kennslustundum skólans? | Já. Ef myndupptökur hafa verið gerðar, þá já. |
Geta nemendur óskað eftir að fá aðstoð glósuvinar í kennslustundum sem veitir aðstoð við að skrá niður glósur í tímum? | Það hefur ekki verið eftirspurn eftir því |
Geta nemendur fengið glósur á blindraletri? | Það hefur ekki verið eftirspurn eftir því |
Eru bækur á stafrænu formi fyrir tölvuþul í boði fyrir nemendur? | Já |
Eru góðir stólar í öllum kennslustofum, þar sem það á við? | Já |
Eru borð fyrir alla nemendur í kennslustofum, þar sem það á við? | Já |
Er möguleiki á upphækkun á borðum í kennslustofum? | Nei |
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika aðgengi að öllu starfi skólans án aðstoðar? | Óljóst spurning, óljóst hvað verið er að spyrja um. |
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika möguleika á að hlusta á allt námsefni og upplýsingar? | Já |
Eru skýringamyndir til stuðnings við texta í öllu námsefni og upplýsingum? | Já |
Eru allar upplýsingar og fyrirmæli aðgengilegar á skýru og einföldu máli? | Já |
Hafa allir heyrnarskertir og/eða heyrnarlausir einstaklingar aðgengi að starfsemi skólans? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því. |
Hafa heyrnarskertir og heyrnlausir einstaklingar afnot að tónmöskva í kennslustundum? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því. |
Eru tölvur með sérhæfðum búnaði fyrir blinda og sjónskerta til staðar? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því. |
Spurning | Svarið |
---|---|
Hafa nemendur kost á lengri próftíma | Já |
Geta nemendur óskað eftir að taka próf í rólegum aðstæðum þar sem fáir nemendur deila próftökustað | Já |
Geta nemendur sótt eftir því að fá ritara í prófum | Já |
Geta nemendur fengið hvíld innan prófs án skerðingar próftíma | Já |
Er í boði að taka öll próf í tölvu | Já |
Er í boði að taka próf í tölvu með stafsetningarforriti? | Já |
Er í boði að taka öll próf munnlega | Já |
Geta nemendur fengið stækkuð prófblöð | Já |
Geta nemendur fengið stækkað letur á prófblöðum | Já |
Geta nemendur fengið lituð prófblöð | Nei. Nemendur fá litaglærur. |
Geta nemendur fengið próf á blindraletri? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því. |
Spurning | Svarið |
---|---|
Býður skólinn upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu? | Nei |
Býður skólinn upp á ókeypis sálfræðiþjónustu? | Nei |
Er möguleiki á stuðningsviðtali hjá starfsmanni skólans, t.d. hjá námsráðgjafa? | Já |
Hefur skólinn táknmálstúlk fyrir nemendur? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því. |
Hefur skólinn rittúlk fyrir nemendur? | Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því |
Er prófkvíðanámskeið í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Já |
Er námskeið varðandi námstækni í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Já |
Býður skólinn upp á annars konar hjálparnámskeið? | Já |
Spurning | Svarið |
---|---|
Eru stúdentagarðar í göngufæri við skólann? | Já |
Eru stúdentaíbúðir í færi með almenningssamgöngum? | Já. |
Eru stúdentaíbúðir í færi með einkabíl? | Já. Skólar LBHÍ eru í dreifbýli og því eru almenningsamgöngur samkvæmt því. |
Eru sérútbúnar íbúðir fyrir fatlaða á stúdentagörðum skólans? | Já |
Spurning | Svarið |
---|---|
Veitir skólinn upplýsingar um réttindi allra nemenda? | Já |
Eru upplýsingar um réttindi nemenda á heimasíðu skólans? | Já |
Er starfsmaður/starfsmenn í skólanum með upplýsingar á færi varðandi rétt nemenda? | Já. Ólíklegt að allir starfsmenn búi yfir þeim upplýsingum en lykilstarfsmenn vita þær. |
Benda starfsmenn (t.d. náms- eða starfsráðgjafar) skólans nemendum á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? | Nei |
Benda starfsmenn skólans fötluðu fólki á réttindi sem það hefur hjá Öryrkjabandalaginu og öðrum sambærilegum samtökum? | Já |